| Hjartanlega velkomin á heimasíðuna okkar |
| Við heitum Sóley Björk, Sólon Daði og Sunneva Lind. |
|
|
Við erum einnig með myndbandasíðu á youtube en slóðin er http://www.youtube.com/astabjorkh til að fara beint á síðuna smelltu hérna ~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~ Sóley Björk er 11 ára og því elst af systkinunum, hún er forfallin hestastelpa og elskar öll dýr enda stefna hennar tekin á nám í dýralæninum hérna í Danmörku. Hún er einnig í TaeKwanDo og handbolta, hún spilar með Egen. Sóley Björk er í 5 bekk í Nørreskov-Skole
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~ Sólon Daði er næstur í röðinni en hann er 10 ára TaeKwanDo og fótbolti á hug hans allan, hann er líka bara ansi klár með boltann. Hann æfir fótbolta og spilar með Egen. Hann elskar að hjóla, alla bíla og farartæki.. Sólon Daði er í 4 bekk í Nørreskov-Skole
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~ Sunneva Lind er 4 ára og því augljóslega yngst, meiri dömu og prinsessu er varla hægt að finna. Hún gjörsamlega elskar ballett, kjóla, pils, skór, gloss, glyngur og allt sem hægt er að nota til að punta sig með. Hún er byrjuð að æfa fimleika með Egen. Sunneva Lind er á leikskólanum Spiloppen og heitir deildin hennar Tudserne
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~ Öll eru þau alveg dásamleg og eru foreldrarnir Róbert Vignir Gunnarsson og Ásta Björk Harðardóttir einkar stoltir af þeim og öllu sem þau gera. Við fjölskyldan erum flutt til Danmerkur en þá hófst ævintýri fyrir okkur en við fluttum þangað ásamt hundunum okkar Perlu og Cöru. Við komum til með að búa á Suður-Jótlandi Foreldrar okkar halda úti síðunni svo að fjölskyldur og vinir okkar á Íslandi geti fylgst með okkur:) Endilega sendið póst á astabjorkh@gmail.com eða robertvignirg@gmail.com til að fá lykilorðið sent.. |
|
|
|
TAKK FYRIR KOMUNA Á SÍÐUNA OKKAR OG MUNDU AÐ KVITTA Í GESTABÓKINA |
| Þú ert gestur nr. 2309 |